Sindra fréttir
Kvennalið Sindra í blaki á öldungamóti 2009
Kvennalið Sindra í blaki á öldungamóti 2009

12.03.2010 Sindra fréttir

Mikil gróska í Blakinu

 Stelpurnar í mfl. Sindra gerðu sér lítið fyrir og unnu Austurlandsriðilinn í 2. deild., skákuðu m.a. blakveldi Þróttar-Nes.
Þær  spiluðu 10 leiki í vetur og unnu 8 af þeim.
Spilað var í þremur  riðlum og fara tvö lið úr suðurriðli í úrslit, eitt lið úr norðurriðli og svo Sindri úr austurriðli.  Úrslitin verða spiluð í Kópavogi helgina 9. – 10. apríl. Það lið sem vinnur fer svo upp í 1.deildina.
Það hefur verið mikil gróska í blakinu í vetur og það sem er framundan er seinni hluti Íslandsmóts hjá krökkunum sem verður 16. – 18. apríl í Kópavogi
Öldungamót verður helgina 13. -15. maí í Mosfellsbæ.  Sindri stefnir á að senda 2 karlalið og 2 kvennalið.
Blakkveðjur

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica