Afmælisbarnið Umf. Sindri 75 ára
Afmælishátíð í íþróttahúsinu laugardaginn 5. desember kl. 13:00
Ungmennafélagið Sindri var stofnað á Höfn 1. desember 1934 og á því 75 ára afmæli í ár. Félagar í Sindra ætla að fagna tímamótunum með ýmsum hætti um þessa helgi. Sögusýning úr sögu félagsins var opnuð á afmælisdaginn í Menningarmiðstöð Hornafjarðar í Nýheimum.
Sannkölluð afmælishátíð verður haldin í íþróttahúsinu laugardaginn 5. desember. Hátíðin hefst kl. 13:00 með ávörpum. Viðurkenningar fyrir vel unnin störf fyrir Sindra á undangengnum árum verða afhentar og síðan munu starfsmenn ráðhúss og bæjarstjórn reyna sig í fótbolta gegn Íslandsmeisturunum Sindra í 3. flokki kvenna. Það verður án efa forvitnilega barátta. Í lok dagskrárinnar verður boðið upp á dýrindis afmælistertu frá Jóni Bakara. Hinar fjölmörgu deildir sem starfa innan vébanda Sindra munu kynna starfsemi sína kl. 14:00 í íþróttahúsinu.
Umf. Sindri óskar öllum Hornfirðingum innilega til hamingju með afmælisbarnið sem hefur dafnað vel á þessum 75 árum. Það er von okkar hjá Sindra að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í hátíðahöldunum með okkur. Til hamingju með daginn Umf. Sindri.




Skrifa athugasemd