Sindra fréttir
Í Formi 2008
Í Formi 2008
Mynd 1 af 2
1 2

17.09.2009 Sindra fréttir

Íformi um helgina

Nú um helgina hefst mótið Íformi, en það er íþróttamót fyrir 30 ára og eldri.  Mótið er fjölgreinamót en keppt er í Bridge, Blaki, Fótbolta, Golfi, Badminton og Frjálsum íþróttum. Ágætis skráning er á mótið sem byrjar með Bridgemóti í Heppuskóla kl 18:00 á föstudaginn og kl 19:00 hefst svo Blakmót kvenna. Laugardagurinn er svo þétt skipaður; byrjar með Golfmóti og verður ræst út af öllum teigum kl 9:00. Blakmót karla hefst svo kl:10:00 sem og fótbolti kvenna. Eftir hádegi eða klukkan 13:00 hefst svo fótbolti karla, badminton og frjálsíþróttakeppnin. Tímaseðillin fyrir frjálsíþróttamótið er hægt að nálgast á heimasíðu mótsins en slóðin er iformi.is.  Íþróttamótinu verður svo slitið með stórglæsilegum hátíðarkvöldverði á Hótel Höfn þar sem lögð er áhersla Hornfirskt hráefni.  Eftir borðhaldið sér svo hljómsveitin Parket um stuðið langt fram á nótt. Það er Ungmennafélagið Sindri sem hefur veg og vanda að þessari íþróttahátíð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica