Sindri Íslandsmeistari í 3 flokki kvenna í 7 manna bolta
Hornfirðingar eignuðust Íslandsmeistara þegar stelpurnar í 3. flokki kvenna unnu úrslitakeppnina sem haldin var í Garðinum í gær, 23. ágúst. Þær tóku daginn snemma og rúlluðu yfir KS/Leiftur 7-2 næsti leikur var gegn gestgjöfunum í Víði og endaði sá leikur 1-1 eftir mikla baráttu. Síðasti leikurinn var við Hvöt og endaði sá leikur 3-0 fyrir Sindra og hefði getað verið mun stærri, en það dugði og Íslandsmeistaratitillin okkar. Til hamingju stelpur. Þjálfari 3. flokks er Sindri Ragnarsson.
Um næstu helgi verður úrslitakeppni í 5 flokki kvenna haldin hér á Sindravöllum og hvetjum við sem flesta að mæta og hvetja stelpurnar.



Skrifa athugasemd