Þórey Edda heimsækir Frjálsíþróttaskóla Sindra og UMFÍ
Sindri heldur frjálsíþróttaskóla í samstarfi við UMFÍ í frjálsum íþróttum og hefst það á mánudaginn 20.júlí. Tilgangur þess er að þjálfa og auka áhuga barna á þeim greinum í frjálsum sem keppt er í á unglingalandsmóti UMFÍ. Þétt dagskrá verður frá 9.00 - 16.00 mánudag til fimmtudags bæði í þjálfun og leik. Þjálfarar á námskeiðinu eru þau Guðrún Ingólfsdóttir, Gísli Pálson og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir. Matur og vallarnesti eru innifalinn í þátttökugjaldinu sem er aðeins 5.000 krónur
Dagskráin lítur svona út
Mánudagur 20 júlí
9.00 Skráning
9.30 – 12.00 Æfingar undir stjórn Guðrúnar Ingólfsdóttur
12.00 – 13.00 Matur (Kjötbollur)
13.00 – 15.00 Æfingar undir stjórn Guðrúnar Ingólfsdóttur
15.00 – 16.00 Sund
Þriðjudagur 21. Júlí
9.00 – 12.00 Æfingar undir stjórn Gísla Pálsonar og Guðrúnar Ingólfsdóttur
12.00 – 13.00 Matur (Gordon Blue)
13.00 – 15.00 Ferð út á Melatanga ath. að hafa viðeigandi búnað með um morguninn
15.00 – 16.00 Sund
Miðvikudagur 22. Júlí
9.00 – 12.00 Æfingar undir stjórn Gísla Pálssonar og Jóhönnu Írisar
12.00 – 13.00 Matur (Lasagna)
13.00 – 14.30 Æfingar undir stjórn Gísla Pálssonar og Jóhönnu Írisar
14.30 – 16.00 Sund
Fimmtudagur 23. Júlí
9.00 – 12.00 Æfingar undir stjórn Gísla Pálssonar og Jóhönnu Írisar
12.00 – 13.00 Grill
13.00 Óvissuferð
15.00 Námskeiðlok




Skrifa athugasemd