Sveinbjörg fær styrk
Sjöþrautarkonan Sveinbjörg Zophoníasdóttir fékk á dögunum styrk úr Afreks- og styrktarsjóði USÚ að upphæð 100.000 kr. Sveinbjörg heldur til Ítalíu sunnudaginn 5. júlí til að keppa á heimsmeistaramóti unglinga auk þess sem hún hefur fengið boð um að fara á fleiri mót utanlands seinna í sumar.
Aðstaða til iðkunar frjálsíþrótta hér á Höfn er til fyrirmyndar og gerir ungu afreksfólki eins og Sveinbjörgu kleift að búa heima og æfa við toppaðstæður. Þær mæðgur Sveinbjörg og Guðrún Ingólfsdóttir segja Sindravelli vera einn besta völl landsins til að æfa á vegna þess hve mjúkur hann er.
Við óskum Sveinbjörgu góðrar ferðar og góðs gengis á erlendri grundu.




Skrifa athugasemd