Sindra fréttir
Ævintýra og leikjanámskeið
Ævintýra og leikjanámskeið
Mynd 1 af 2
1 2

29.05.2009 Sindra fréttir

Ævintýra og leikjanámskeið Sindra að hefjast

Ungmennafélagið Sindri verður með ævintýra og leikjanámskeið fyrir 5 – 10 ára börn sem fara af stað þriðjudaginn 2. júní. Alls verða námskeiðin fjögur og standa öll yfir í 2 vikur í senn.  Á námskeiðunum verður farið um víðan völl t.d. verður farið á hestbak, í fjöruferðir, sund, golf og veiðiferðir svo eitthvað sé nefnt. Þá verður alltaf grillað í lok hvers námskeiðs.


Verð á námskeiðin er 7000 kr., 10.000 kr. fyrir tvö systkini og frítt fyrir þriðja.  Sé greitt fyrir þrjú námskeið í einu er gjaldið 18.000 kr en 22.000 fyrir tvö systkini. Dagskráin er frá 9.00 – 12.00 en boðið er upp á gæslu milli 8.00 – 9.00

Námskeiðin verða á eftirtöldum tímabilum:

2. Júní -  12 júní, 15. júní – 26. júní, 6. júlí – 17. júlí, 20. júlí – 31. júlí    

Sigríður Bjarney Guðnadóttir er yfirumsjónarmaður leikjanámskeiðunum, en henni til aðstoðar eru þær Valdís Ósk Sigurðardóttir og Árdís Drífa Birgisdóttir

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica