Sindra fréttir
Fyrsti leikurinn í kvennaboltanum
Fyrsti leikurinn í kvennaboltanum
Meistaraflokkur Sindra

27.05.2009 Sindra fréttir

Laugardaginn 30. maí er sannkölluð fótboltaveisla á Sindravöllum.

Nú er fótboltasumarið að byrja á fullum krafti hjá öllum flokkum Sindra. Á laugardaginn er tvöföld veisla á Sindravöllum þegar meistaraflokkarnir taka á honum stóra sínum.

Karlarnir byrja daginn og taka á móti Árborg klukkan 14:00.

Sindra strákarnir sigruðu Létti örugglega í fyrsta leik sumarsins 3-0 og var það Atli Arnarson sem átti fyrsta mark sumarsins. Þess má til gamans geta að strákarnir okkar hafa ekki tapað á heimavelli síðan í september 2007 og vonandi mun það haldast þannig áfram.
Leikurinn á laugardaginn er gríðarlega mikilvægur fyrir Sindramenn enda Árborg spáð 1. sæti í riðlinum. Stuðningur Hornfirðinga er því gríðarlega mikilvægur og 12. maðurinn í stúkunni getur gert gæfumuninn.

En einn leikur er ekki nóg fyrir Sindramenn eins og fyrr kom fram og mun því annar leikur taka við strax á eftir leiknum hjá strákunum en þá mun meistaraflokkur kvenna keppa sinn fyrsta leik þetta sumarið. Kl. 16:30 taka Sindraskvísur á móti Selfoss og ætla svo sannarlega að taka Selfossliðið í bakaríið. Suðulandsskjálftinn hvað sko ??? .. Spurning hver mun skora fyrsta mark sumarsins fyrir hönd Sindrastelpnanna?
Stelpurnar eru komnar með nýjan þjálfara, en það er 'unga' kempan hann Sindri Ragnarsson. Sindri hefur verið að gera það gott með stelpurnar þessar fáu vikur sem að hann hefur verið með þær og er því spennandi að sjá hvernig þær standa sig á laugardaginn. Þess má til gamans geta að stelpurnar töpuðu í fyrsta leik Lengjubikarsins á móti Selfossi en með nýjan þjálfara og reyndari hóp ætla þær að vinna leikinn á laugardag.

Með meistaraflokk kvenna hafa ekki æft svona margar stelpur í langan tíma og gaman að sjá hvað boltinn er að byggjast aftur upp hjá þeim. Kvennaboltinn fer sífellt stækkandi hér á landi og á það svo sannarlega  líka við um Höfn. Þær ætla sko aldeilis ekki að slá slöku við í auglýsingabransanum og verða auglýsingarnar á sínum stað í allt sumar.
Í hálfleik ætla stelpurnar að bjóða uppá örlítinn glaðning svo ekki láta þig vanta á völlinn.
Það má enginn má missa af þessari stórglæsilegu fótboltaveislu á laugardaginn.

Fyrir hönd meistaraflokkanna vonast ég til þess að sjá ykkur öll á vellinum á laugardaginn á báðum leikjunum með mikil læti og látum andstæðingana finna fyrir okkur.

Iðunn Tara Ásgrímsdóttir, leikmaður mfl. kvk

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica