Sindra fréttir
Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppir á Norðurlandameistaramóti unglinga í fjölþrautum
Sveinbjörgu Zophoníasdóttur er boðið að keppa á Norðurlandameistaramóti unglinga í sjöþraut
sem fram fer í Reykjavík þann12- 13 júní. Það er mjög glæsilegt hjá henni að hafa unnið
sér inn það afrek að vera valin á það mót. Hún keppir í 7 þraut sem saman stendur af 100m grind, langstökki, hástökki, kúluvarpi, spjótkasti, 200 m hlaupi og 800 m hlaupi.
Þetta er í fyrsta sinn sem stúlka frá Hornafirði keppir á svona stóru móti.
Sveinbjörg hefur æft mjög vel í vetur og er því til alls líkleg í sumar.



Skrifa athugasemd