Meistaramót Íslands 11-14 ára 16-17 ágúst á Laugum í Reykjadal.
Föstudaginn 15. ágúst s.l. lögðu sjö krakkar úr USÚ á stað norður á Lauga í Reykjadal til þess að taka þátt í Meistaramóti Íslands. Mótið hófst kl. 11 á laugardagsmorgni í frábæru veðri. Við áttum 2 keppendur í aldursflokknum 11 ára stelpur, 1 í flokki 12 ára stelpna, 2 í flokki 13 ára telpna, 1 í flokki 13 ára pilta og 1 í flokki 14 ára pilta. Anna Birna Elvarsdóttir kom heim með silfurverðlaun í 60m hlaupi 11 ára stelpna og líka með silfurverðlaun í langstökki. Einar Ásgeirsson tryggði sér silfurverðlaun í 800m hlaupi 14 ára pilta.
Allir þessir krakkar stóðu sig með stakri prýði og komust í úrslit í mörgum greinum þó að þau hafi ekki öll komist á verðlaunapall. Við sem vorum með krökkunum þessa helgina þökkum kærlega fyrir okkur. Þau stóðu sig öll vel og voru félagi sínu og okkur öllum til mikils sóma.
Um næstu helgi verður Meistaramót Íslands 15-22 ára á Sauðárkróki. Þangað fara nokkrir keppendur frá USÚ. Við óskum þeim góðrar ferðar og góðs gengis.




Skrifa athugasemd