Íformi fjölgreinamót haldið bráðlega
Íformi er fjölgreinamót fyrir 30 ára og eldri sem haldið er á Hornafirði dagana 19.-20. september. Forsaga mótsins er sú að í fyrra var hér haldið glæsilegt unglingalandsmót og kviknaði þá sú hugmynd halda mót fyrir 30 ára og eldri, og skildi mótið vera haldið á landsvísu. Stjórn Sindra hóaði nokkrum saman til að kýla á þessa hugmynd og var á fyrsta fundi sem haldinn var skipuð nefnd, en í henni eru, Sívar Árni Scheving, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir og Grétar Vilbergsson. Starfsmaður nefndarinnar er Valdemar Einarsson og honum til halds og traust er formaður Sindra, Ásgrímur Ingólfsson. Var reynslan notuð frá því í fyrra og fengnir greinastjóra fyrir allar greinar, en þeir eru Björg Erlingsdóttir fyrir badminton, Hjálmar Sigurðsson fyrir golf, Ólafur Jónsson fyrir fótbolta, Sigríður Arna Ólafsdóttir fyrir blak, Guðrún Ingólfsdóttir fyrir frjálsar íþróttir og Gunnar Páll Halldórsson fyrir brids. Skráning er komin af stað og hefur nefndin fundið fyrir töluverðum meðbyr og eru æfingar vel sóttar í öllum greinum. Má til gamans nefna þá nýjung að æfingar fyrir þennan aldurshóp eru komnar af stað í frjálsum íþróttum, kvennaknattspyrnu og karlablaki. Þá hafa brottfluttir Hornfirðingar spurt um mótið og er reiknað með töluverðu af gestum.
Skráningargjald er 8000 krónur og er innifalið glæsileg skemmtun með mat og dansleik á Hótel Höfn. Eins er hægt að skrá sig eingöngu í keppni og er gjaldið þá 3000 krónur.
Eins og fyrr segir verður keppt í eftirfarandi greinum;
Brids
Frjálsar íþróttir
Fótbolti 5 manna liðum karla og kvenna
Blak
Badminton, tvíliðaleikur og eru blönduð lið leyfð
Golf
Á laugardagskvöldinu er matur skemmtun og dansleikur
Matseðill
br /> Tortilla fyllt með jöklableikju frá Hala.
Reykt andabringa frá Reyni á Hlíðarbergi með bláberjadressingu.
Egg frá Grænahrauni bætt með smjöri og estragon.
Humarpastasalat "sweet chilli".
Meðlæti: brauð, smjör, hrísgrjónasalat, dressingar, salöt og fleira viðeigandi.
----------------
Villikryddað hægeldað lambainnralæri.
Stökk grísasíða (purusteik)
Meðlæti: gratíneraðar kartöflur, grænmeti, salat, sósur, rauðkál, baunir og fleira viðeigandi
----------------
Hvít súkkulaðiskyrkaka að hætti Hótel Hafnar
Atriði frá Skemmtifélagi Hornafjarðar
Dansleikur með hljómsveitinni KUSK
Allar nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu mótsins iformi.is eða í síma 86-86-86-5




Skrifa athugasemd