Sindra fréttir
3. flokkur karla Íslandsmeistarar
3. flokkur karla Íslandsmeistarar
3. flokkur karla Íslandsmeistarar

01.09.2008 Sindra fréttir

Úrslitakeppnin hafin - frítt á völlinn

Sindramenn spiluðu á KR vellinum um síðastliðna helgi þar sem þeir öttu kappi við KV í fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum 3. deildar karla. Skemmst er frá því að segja að leikurinn endaði með 2-2 jafntefli, sem verða að teljast viðundandi úrslit í ljósi þess að strákarnir voru að spila á útivelli. Kristinn Þór Guðlaugsson og Tadej Venta skoruðu mörk Sindra í leiknum. Seinni leikurinn fer fram þriðjudaginn 02. sept. kl. 17:30 á Sindravöllum. Sparisjóður Hornafjarðar og Kaffi Hornið hafa ákveðið að leggja strákunum lið í baráttunni og ætla að bjóða Hornfirðingum frítt á völlinn. Það lið sem stendur uppi sem sigurvegari í þessum tveimur viðureignum kemst í 4 liða úrslit þar sem baráttan um tvö laus sæti í 2. deild karla fer fram.

Við hvetjum alla Hornfirðinga til þess að fjölmenna á völlinn á þriðjudaginn og styðja við bakið á strákunum sem ekki hafa tapað leik á heimavelli í sumar. Höldum þeirri velgengni áfram á þriðjudaginn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica