Sindra fréttir
Símamótið 2008
Símamótið 2008
Símamótið 2008
Mynd 4 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

17.07.2008 Sindra fréttir

Baráttugleðin skein úr hverju andliti

Stelpur úr 5. 6. og 7. flokki (5-12 ára) á Símamótinu

Fjölmennur hópur frá Sindra lagði leið sína á Símamótið í Kópavogi dagana 10.-13. júlí. Símamótið er stærsta kvennamót sem haldið er hérlendis og voru keppendur um 1500 talsins frá um 25 liðum á landinu. Frá Sindra fóru stelpur úr 5. 6. og 7. flokki en þær eru á aldrinum 5-12 ára. Mótið í ár var frábær skemmtun og var margt gert sér til gamans fyrir utan fótboltann. Má þar helst nefna kvöldvökur, bíóferðir og sögustundir að ógleymdum þeim dýrmætu tímum sem stelpurnar áttu saman í skólanum þar sem þær kynntust stelpum frá öðrum liðum og gistu saman.

Stelpurnar í 5. flokki lentu í erfiðum riðli á mótinu en stóðu þó vel í hinum liðunum og mega vera stoltar af framgöngu sinni í leikjunum. Ljósbrá Ragnarsdóttir var til að mynda valin í pressulið mótsins sem samanstendur af bestu leikmönnum 5. flokks kvenna.

Stelpurnar í 6. flokki stóðu sig mjög vel og áttu án efa einhverja af bestu leikmönnum mótsins í þessum flokki. Þær lentu í 12. sæti í flokki A-liða en 23 lið sendu lið til keppni í 6. flokki. Þær voru heldur óheppnar og hefðu getað spilað um 9. sæti en töpuðu undanúrslitaleiknum á hlutkesti fyrir Fylki.

Í 7. flokki voru tvö lið send á mótið, annars vegar A-lið og hinsvegar lið sem spilaði í byrjendaflokki. Skemmst er frá því að segja að bæði liðin fóru í gegnum riðlakeppnina án þess að tapa leik. A-liðið vann sinn riðil á mótinu og spilaði um 1.-4. sætið af 18 félögum sem tóku þátt og lentu þær í 4. sæti sem er frábær árangur á svona stóru móti. Byrjendaflokkurinn lenti í 2. sæti í riðlinum en þar sem aðeins var um einn riðil að ræða spiluðu þær í úrslitariðli um 1.-3. sæti og enduðu í 2. sæti og fengu því silfurpening á sínu fyrsta fótboltamóti.

Gaman var að sjá hvernig stelpurnar lærðu af hverjum leik sem þær spiluðu og baráttugleðin skein úr hverju andliti. Foreldrar og aðrir fjölmenntu á mótið til að styðja stelpurnar og ekki þarf að taka fram hversu mikilvægur sá stuðningur var stelpunum. Fararstjórar eiga einnig mikið hrós skilið fyrir frábæra skipulagningu ferðarinnar og fyrir að halda utan um þennan stóra hóp en margar stelpur voru að fara á sitt fyrsta fótboltamót. Ekki fer á milli mála að sú reynsla sem stelpurnar öðlast á svona móti er gott veganesti, bæði á fótboltavellinum og ekki síst út í lífið.

Framtíðin er björt í kvennaboltanum hjá Sindra og nú er mikilvægt að halda vel utan um þessar stelpur og sýna því sem þær eru að gera áhuga svo þær haldi áfram á sömu braut.

Áfram Sindri!

Jóna Benný og Sandra þjálfarar 6. og 7. flokks kvenna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica