Sindra fréttir
Þjálfarar 2008
Þjálfarar 2008
Þjálfarar 2008

27.06.2008 Sindra fréttir

Sindraleikar á Humarhátíð

Mikil gróska er í frjálsíþróttunum og augljóst að þessi frábæra aðstaða sem við fengum í fyrra er að skila sér. Iðkendur í frjálsum íþróttum hafa sennilega aldrei verið fleiri en nú, en um 40-50 börn og unglingar stunda reglulegar frjálsíþróttaæfingar sem eru níu sinnum í viku. Þjálfararnir hjá okkur eru heldur ekki af verra taginu en við höfum yfir að ráða fjórum framúrskarandi þjálfurum sem allt saman eru núverandi eða fyrrverandi landsliðsmanneskjur í frjálsum íþróttum. Þetta eru þau Guðrún Ingólfsdóttir, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Bjarni Malmquist og Stefanía Hákonardóttir.
Á Humarhátíð, sunnudaginn 6. júlí kl. 14:00 verða Sindraleikarnir þar sem áhugasamir frjálsíþróttamenn fá að spreyta sig. Öllum er velkomið að taka þátt í Sindraleikunum og vonumst við til þess að sjá sem flesta.

Hér má nálgast tímaseðilinn (pdf)
Ef einhverjir vilja vera búnir að æfa sig fyrir leikana þá eru frjálsíþróttaæfingar sem hér segir:
10 ára og yngri á Sindravöllum kl. 12:00 mánudaga til fimmtudaga
11 ára og eldri á Sindravöllum kl. 19:00 mánudaga til fimmtudaga.
Ein föst æfing er inn við Mánagarð í viku, kl. 10:45 á miðvikudögum. Auk þessa er stefnt að því að vera reglulega með bætingamót og er þegar búið að halda eitt slíkt þar sem árangur var afbragðsgóður. Þau eru auglýst á æfingum en það næsta verður kl. 20:00 næsta sunnudag og þá verður keppt í hástökki fyrir 13 ára og eldri en kúluvarpi hjá öllum aldursflokkum.

Um síðustu helgi fóru nokkur börn frá USÚ á Gogga Galvaska mótið í Mosfellsbæ og náðu góðum árangri. Af árangri okkar keppenda báru afrek Sigrúnar Sölku Hermannsdóttur hæst en hún keppti í fjórum greinum og sigraði í þeim öllum.

Í lok maí tók Sveinbjörg Zophoníasdóttir líka þátt í Meistaramóti Íslands í fjölþraut sem haldið var í Borgarnesi. Hún gerði sér lítið fyrir og varð í 2. sæti og setti um leið Úlfljótsmet 4135 stig. Hana vantaði einungis 62 stig upp á að vinna sér inn rétt á Norðurlandameistarmót unglinga sig í fjölþraut og stefnir hún að því að komast þangað á næsta ári.



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica