Sindra fréttir
Frá hátíðarhöldunum á Hóteltúni 2004
Frá hátíðarhöldunum á Hóteltúni 2004
Mynd 3 af 3
1 2 3

16.06.2008 Sindra fréttir

17. júní á Höfn

Ungmennafélagið Sindri heldur utan um hátíðarhöldin að þessu sinni og er dagskráin með nokkuð hefðbundnum hætti. Skrúðganga verður farin frá Vesturbrautarplaninu kl. 14.00
og verður gengið upp á Hóteltún þar sem dagskrá hefst kl. 14.30 með því að lúðrasveitin leikur nokkur lög. Þá verður hátíðarávarp, tilnefning til íþróttamanns ársins USÚ 2007, ávarp fjallkonunnar, ávarp nýstúdents, fimleikasýning og söngatriði.
Eftir þetta verður boðið upp á grillaðar pylsur, leiktæki og andlitsmálun ofl.
Um kvöldið verður svo fjölskyldudansleikur í íþróttahúsinu frá kl. 20.00 og mun hljómsveitin Undur skemmta.
Forsala á gasblöðrum og rellum verður við Krónuhúsið kl. 13.00
Allur ágóði af sjoppusölu rennur í ferðasjóð 3. fl. Sindra

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica