Námskeið og æfingar að hefjast hjá Sunddeild Sindra
Sumarstarf sunddeildar Sindra er nú að fara í fullan gang og hefjast æfingar og námskeið mánudaginn 9.júní. Sundnámskeið verða fyrir 5-6 ára börn og sundæfingar þrisvar í viku fyrir 7 ára og eldri. Nánar auglýst á Skjávarpi, í sundlaug og í bækling æskulýðs og tómstundaráðs. Stjórn sunddeildar Sindra hvetur sem flesta til að mæta á sundæfingar. Eftir páska tók nýr þjálfari við sunddeildinni þegar Barbara Dröfn Fischer yfirgaf okkur. Nýi þjálfarinn er Berglind Þorsteinsdóttir frá Keflavík. Berglind er vel kunnug sundíþróttinni en hún æfði sund í 11 ár, keppti á mörgum mótum og vann til margra verðlauna á sundferlinum .
Eitt af fyrstu verkefnum Berglindar hjá sunddeildinni var að fylgja keppendum á sundmót hjá nágrönnum okkar á Djúpavogi á sumardaginn fyrsta þar sem keppendur stóðu sig mjög vel. Í maí var haldin vorgleði með furðufatasundi og ísferð á eftir, það vakti að sjálfsögðu mikla lukku meðal iðkenda.
Framundan eru Sumarhátíð ÚÍA og unglingalandsmót í Þorlákshöfn, spennandi viðburðir fyrir alla fjölskylduna.
Mannabreytingar hafa orðið í stjórn Sunddeildarinnar og hafa Þórgunnur Torfadóttir og Herdís Tryggvadóttir látið af störfum og eiga þakkir skilið fyrir gott starf. Erna Einarsdóttir heldur áfram í stjórn og til liðs við hana koma Þórhildur Ásta Magnúsdóttir, Þuríður Snorradóttir og Anna B. Kristjánsdóttir.



Skrifa athugasemd