Sindra fréttir
Ljón
ljon
Ljón

23.04.2008 Sindra fréttir

Sumardagurinn fyrsti

Á sumardaginn fyrsta ætlar Sindri ásamt stuðningsaðilum að standa fyrir dagskrá við Sindrabæ, sem hefst kl. 13.00 með skemmtiskokki út í Ósland með kjörorðinu "allir með á sínum hraða!". Boðið er upp á tvær leiðir, aðra með fjörunni og hring um Óslandstjörnina sem er um 3 km og hin sem farið er eftir Óslandsveginum og snúið við út á Gónhól.
Engin verðlaun verða í boði, en Vífillfell býður þeim sem taka þátt Bergtopp í nesti.
Svo um kl. 14.00 - 16.30 verða uppblásin leiktæki á planinu við Sindrabæ ásamt einhverjum óvæntum glaðningi frá Landsbanka Íslands og TM.
Þá verður frítt í sund fyrir alla þennan dag í boði Æskulýðs- og tómstundarráðs Hornafjarðar.
Dagskráin er í boði UMF. Sindra, TM, Landsbanka Íslands, Vífilfells, Hopp.is og Æskulýðs- og tómstundarráðs Hornafjarðar. Gleðilegt Sumar!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica