Borið í gervigrasvöllinn
Gervigras þarf áburð ekki síður en lifandi gras og sá áburður er kurlað gúmmí að mestu unnið úr hjólbörðum. Starfsmenn Sport-Tækis í Hveragerði voru í dag (22.4) að bera kurl á sparkvöllinn við íþróttahúsið. Áður en gúmmíkurlið er sett á völlinn er hann ryksugaður vel og hreinsaður og síðan er kurlið borið á. Þar sem mikið álag er á gervigrasinu svo sem er á sparkvellinum þarf að bera kurl í hann helst á hverju ári. Fyrstu tvær vikurnar eru líkur á að þeir sem völlinn nota fari með smásýnishorn af kurlinu neðan í skóm sínum heim og þykir það ekki gott í teppi eða önnur gólfefni svo þá er gott ráð að fara bara úr skónum utan dyra.




Skrifa athugasemd