Sindra fréttir
Sindri_HPIM0651_uti
Sindri_HPIM0651_uti
Ásgrímur, Aðalsteinn, Gunnar, Gauti og Halldóra fyrir fram nýja bílinn.

03.04.2008 Sindra fréttir

Sindri og Skinney-Þinganes undirrita nýjan samning

Ungmennafélagið Sindri og Skinney-Þinganes undirrituðu 2. apríl nýja samning þess efnis að Skinney-Þinganes styrkir UMF. Sindra um 4,5 milljónir til þess að endurnýja bílaflota sinn. Nú þegar er búið að taka í notkun bíl sem var keyptur fyrir þennan styrk en fyrir valinu hjá stjórn Sindra var Renult Master 15 farþega bíll sem Sparibíll flutti inn fyrir félagið. Fyrir á UMF. Sindri 2 bíla af gerðinni Ford Transit sem einmitt hafa verið keyptir fyrir styrk frá Skinney-Þinganes en ráðgert er að selja annan af gömlu bílunum. Það er mikil bylting að fá þennan nýja bíl sem er hærri til lofts og með ýmsum nútíma þægindum sem gömlu bílarnir hafa ekki. En þrátt fyrir útlitið og töluverðan aldur hafa gömlu bílarnir reynst mjög vel og hafa auðveldað okkur að koma ferðum íþróttafólks heim og saman þvers og kruss um landið.

Nýi bíllin er búinn þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum, læstur rétt innan við 100 km. Í honum er sjálfstæð olíumiðstöð aftur í og tölvubeinskiptingu svo eitthvað sem nefnt. Þá er ráðgert að setja í bílinn 19? DVD skjá sem Martölvan og Hátækni styrkja Sindra um.
Samningur þessi gildir næstu 4 árin og er heildarstyrkur Skinneyjar-Þinganes til Sindra þessi ár.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica