Sindra fréttir
Undirritun samnings
Undirritun samnings
Jónu Benný Kristjánsdóttur og árni Árni Rúnar Þorvaldsson
Mynd 3 af 3
1 2 3

01.03.2008 Sindra fréttir

Gengið frá þjálfarasamningum fyrir meistaraflokka

Knattspyrnudeild Sindra hefur nú gengið frá þjálfarasamningum fyrir meistaraflokka félagsins. Skrifað var undir tveggja ára samning við Hajrudin Cardacilja um þjálfun meistaraflokks og 2. flokks karla. Hjá meistaraflokki kvenna skrifaði deildin undir samning við Jónu Benný Kristjánsdóttur og Söndru Sigmundsdóttur sem einnig munu leika með liðinu næsta keppnistímabil. Þær munu einnig sjá um þjálfun 3. flokks kvenna sem og 6. og 7. flokks kvenna í sumar. Engum blöðum er um það að fletta að það er gríðarlegur fengur að því fyrir meistaraflokk kvenna að fá Jónu Benný aftur heim auk Söndru Sigmundsdóttur sem spilað hefur með Þór/KA á Akureyri við góðan orðstír. Hún hefur einnig getið sér gott orð fyrir þjálfun í Bandaríkjunum. Eins og flestir vita þá hefur hópurinn hjá meistaraflokki kvenna verið mjög ungur síðastliðin sumur og hópurinn ekki stór. Það var því gríðarlega mikilvægt að fá þessa leikmenn til liðs við okkur og til þess að þjálfa.

Um leið og Jóna og Sandra taka til starfa í byrjun maí mun Hajrudin Cardaclija láta af störfum sem þjálfari mfl. kvk. og 3. fl. kvk. og einbeita sér alfarið að þjálfun meistaraflokks karla og 2. flokks karla. Af því tilefni var gengið frá tveggja ára samningi Cardaclija í síðastliðinni viku. Ljóst er að hann tekur við liðinu á mjög erfiðum tíma. Liðið er nýfallið í 3. deild og við taka uppbyggingartímar. Í meistaraflokki karla hefur knattspyrnudeildin glímt við það að liðið hefur að stofninum til verið skipað mjög ungum leikmönnum. Mikil ábyrgð hefur verið lögð á herðar mjög ungra leikmanna. Eins og gengur þá ætla einhverjir leikmenn frá síðasta sumri að reyna fyrir sér annars staðar næsta sumar. Með því myndast stór skörð í hópi sem ekki var alltof stór fyrir. Þessu ætlar deildin að reyna að mæta með því að sækja tvo sterka leikmenn út fyrir landsteinana til þess að hjálpa okkur í baráttunni næsta sumar.

Á síðastu tveimur starfsárum knattspyrnudeildar Sindra hafa verið stigin stór skref í þá átt að greina á milli starfsemi yngri flokka félagsins annars vegar og reksturs meistaraflokkanna hins vegar. Það er skoðun stjórnarinnar að ganga eigi enn lengra í þeim efnum. Útfærslur á því verða ræddar sérstaklega á næsta aðalfundi deildarinnar innan tíðar.

Rekstur tveggja öflugra meistaraflokka er stórt, viðamikið og dýrt verkefni sem margar hendur þurfa að koma að. Það er orðið bráðnauðsynlegt að bæta og efla umgjörð meistaraflokkanna svo við eigum betri möguleika á því að halda lengur í okkar unga og efnilega knattspyrnufólk. Af þessum sökum hyggst meistaraflokksráð knattspyrnudeildar Sindra boða til opins fundar fljótlega þar sem rætt verður um framtíð meistaraflokka félagsins. Fundurinn verður auglýstur þegar nær dregur og vill meistaraflokksráðið hvetja allt áhugafólk um knattspyrnu til þess að mæta á fundinn og ræða um umgjörð og rekstur meistaraflokkanna á svæðinu.

Meistaraflokksráð knd. Sindra

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica