Sindra fréttir
Frjálsar á nýjum velli
Frjálsar á nýjum velli
Fyrsta æfing á nýjum velli

26.02.2008 Sindra fréttir

Aðalfundur frjálsíþrótta- og sunddeilda Sindra

Um þessar mundir eru félög og fyrirtæki að gera upp síðast ár og í kvöld verða aðalfundir hjá frjálsíþrótta- og sunddeild Sindra. Þar verður farið yfir starfið á síðasta ári og hvað framundan er á þessu ári. Það er vissulega spennandi tímar framundan í báðum þessum deildum. Ný sundlaug í byggingu og nýr frjálsíþróttavöllur á Sindravöllum. Fundirnir verða báðir í Sindrahúsinu. Aðalfundur frjálsíþróttadeildarinnar kl. 20:00 og sunddeildarinnar kl. 21:00.

Allir þeir sem áhuga hafa á þessum greinum eru hvattir til að mæta á aðalfundina og láta í ljós sitt skína. Til að halda úti öflugu íþróttastarfi þurfum við að leggjast á eitt og vinna saman því hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér. Því er nýtt fólk sérstaklega velkomið á fundinn bæði til að taka að sér stjórnarstörf en einnig í hugmyndavinnu með þeim sem fyrir eru.



Aðalfundur Sindra verður síðan í kringum 10. mars.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica