Sindra fréttir
Ármann Smári
Ármann Smári
Ármann Smári að keppa við Norður-Írland (SCANPIX)

07.02.2008 Sindra fréttir

Ármann Smári með brjósklos

Ármann Smári Björnsson, leikmaður norska meistaraliðsins Brann í Noregi, var á mánudag sendur með hraði frá æfingabúðum liðsins á La Manga á Spáni til Bergen. Í frétt á mbl.is segir að Ármann hafði fundið fyrir verkjum í fæti en við nánari athugun var hann sendur með flýti til Noregs og fór hann í aðgerð í gær. Íslenski landsliðsmaðurinn hafði fundið fyrir verkjum í öðrum fætinum og læknir norska liðsins vildi ekki taka neina áhættu og sendi hann Ármann til Noregs til frekari rannsókna. Við nánari athugun kom í ljós að Ármann var með brjósklos í baki. Ola Jøsendal læknir Brann segir í viðtali á heimasíðu félagsins að aðgerðin hafi heppnast vel. ?Við höfum fylgst vel með ástandi Ármanns á undanförnum vikum og okkur grunaði að um brjósklos væri að ræða,? sagði Jøsendal.

Ármann Smári segir í viðtali við heimasíðu félagsins að hann hafi ekki grunað að eitthvað væri að honum í bakinu. ?Þetta kom mér á óvart. Ég hef verið með verki í fætinum en ekki bakinu. Ég er glaður að það er búið að komast að því hvað var að mér,? sagði Ármann Smári en hann verður frá æfingum og keppni í allt að sex vikur.

mbl.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica