Mjög öflugur stuðningur Sveitarfélagsins við íþróttastarfið
Umf. Sindri og Sveitarfélagið Hornafjörður hafa gert með sér nýjan samstarfssamning og var hann undirritaður 20.janúar. Byggir hann að nokkru leyti á eldri samningi en með nokkrum breytingum þó. Í þessum samningi sem gildir út árið 2010 er lagður grunnur að frekari eflingu þess æskulýðsstarfs sem umf. Sindri hefur staðið fyrir síðast liðin 75 ár. Með auknu fjármagni er umf. Sindra gert kleift að styðja enn frekar við eflingu jaðaríþrótta og er það eitt af markmiðum samningsins að fjölga þeim íþróttagreinum sem hægt sé að stunda í sveitarfélaginu. Einnig er kveðið á enn frekara forvarnarstarf á vegum félagsins og skal umf. Sindri taka mið af yngri flokka stefnu ÍSÍ og hvetja deildir sínar til að gerast fyrirmyndarfélag innan ÍSÍ sem ýtir undir foreldrastarf, menntun þjálfara, félagsstarf og samheldni.
Eitt af stóru atriðunum í nýja samningum er að sveitarfélagið mun annast daglega umhirðu á Sindravöllum, en ekki umf. Sindri eins og var í eldri samningi. Sett verður á stofn vallarstjórn á vegum sveitarfélagsins en mun fulltrúi félagsins eiga sæti þar. Sveitarfélagið mun kosta allan slátt og aðra umhirðu sem nauðsynleg er á íþróttasvæðum, en mun umf. Sindri þó sjá um ruslatínslu og annað slíkt í kringum mót og aðra viðburði sem eru á vegum félagsins.
Þó nokkur hækkun varð á fjárframlagi sveitarfélagsins til umf. Sindra með tilkomu þessa nýja samnings en með þeim fjármunum heldur umf. Sindri út öflugu æskulýðsstarfi og íþróttastarfi.
Þess má geta að það eru fá sveitarfélög á landinu sem geta státað sig af jafn víðtæri þátttöku ungmenna í íþróttastarfi eins og Sveitarfélagið Hornafjörður. Glæsileg uppbygging íþróttmannvirkja á liðnum árum og fyrirsjáanlegar byggingaframkvæmdir á nýrri sundlaug og íþróttahúsi með gervigrasi, gefa okkur tækifæri til enn frekari bjartsýni og eflingar á íþróttastarfi í sveitarfélaginu.
-ve




Skrifa athugasemd