Sindra fréttir
USÚ úrvalshópur ungmenna
USÚ úrvalshópur ungmenna
Jón Snorri Þorsteinsson, Fannar Blær Austar Egilsson og Sveinbjörg Zophoníasdóttir í USÚ komust í úrvalshóp ungmenna

28.01.2008 Sindra fréttir

Jón Snorri, Fannar Blær og Sveinbjörg í úrvalshóp ungmenna

Þrjú ungmenni í frjálsíþróttadeildum Sindra og Mána eru komin í svokallaðan úrvalshóp ungmenna hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ). Þetta er Jón Snorri Þorsteinsson, Fannar Blær Austar Egilsson og Sveinbjörg Zophoníasdóttir. Viðmið inn í úrvalshópinn eru sett af Íþrótta- og Afreksnefnd FRÍ (ÍÞA) og stýrir Fríða Rún Þórðardóttir unglingalandsliðsþjálfari þessum hóp en hún kom einmitt í heimsókn hingað með fyrirlestra fyrir foreldra og nemendur í grunnskólanum um daginn en hún er næringarfræðingur að mennt. Fríða Rún situr einnig í IÞA en sú nefnd ákvarðar m.a. hverjir fara í landsliðsferðir á vegum FRÍ, hvort heldur í fullorðins- eða unglingakeppnir.

Úrvalshópur ungmenna miðast við aldurinn 15-22 ára og í hann veljast ungmenni sem hafa ná vissum viðmiðum sem ÍÞA hefur sett. Þessi viðmið má finna á heimasíðu FRÍ undir www.fri.is/lágmörk. Í hópnum eru nú yfir 100 ungmenni í öllum greinum frjálsra íþrótta, allstaðar að af landinu. Stefnt er að því setja upp æfingabúðir fyrir úrvalshópinn tvisvar til þrisvar sinnum á ári og er leitast við að halda þessar æfingabúðir víðsvegar um landið, þó oftast á stór Reykjavíkursvæðinu.

Annar hópur, svokallaður afrekshópur er einnig starfræktur á vegum FRÍ. Þar eru mun strangari viðmið sem einnig eru sett af ÍÞA. Í þeim hóp eru nú um 27 ungmenni á aldrinum 15-22. Flestir í afrekshópnum eru í þeim landsliðum sem FRÍ sendir í hinar ýmsu landsliðskeppnir.

Um næstu helgi ætla þremenningarnir okkar að keppa á Meistaramóti Íslands í frjálsum fyrir 15 ? 18 ára ásamt fleiri unglingum héðan og eru sum þeirra einnig farin að banka upp á í úrvalshópnum. Að sjálfsögðu vonumst við til þess að sú frábæra frjálsíþróttaaðstaða sem komin er hér á Höfn verði til þess að fjölga enn þeim sem ungmennum sem komast í úrvalshópinn og svo síðar vonandi afrekshópinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica