Sindra fréttir
Sindra jól 2007
Sindra jól 2007
Sindra jól 2007
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

04.01.2008 Sindra fréttir

Sindra jól

Mikið var um að vera hjá Sindra milli jóla og nýárs. Föstudaginn 28. desember var frjálsíþróttamót í íþróttahúsinu þar sem 34 einstaklingar kepptu í langstökki, hástökki, kúluvarpi og þrístökki. Margir náðu mjög góðum árangri en úrslit má sjá á vefsíðu frjálsíþróttasambandsins fri.is. Á laugardeginum var svo hin árlega firmakeppni Knd. Sindra haldin í íþróttahúsinu og mættu 5 kvenna lið og 8 karla lið. Það var lið Hornafjarðarbæjar sem sigraði í flokki karla, en lið Sparisjóðsins í kvennaflokki. Mótið var að þessu sinni tileinkað minningu kærs vinar og félaga knd. Sindra Jerry Dwayne Williams sem lést snemma á nýliðnu ári. Á sunnudeginum var svo fjölskyldudagur í íþróttahúsinu á vegum 3 flokka knd. Sindra en sá flokkur er að safna sér fyrir ferð til Noregs í sumar. Var íþróttahúsið fyllt af leiktækjum frá Hopp og var þátttakan fín þrátt fyrir að veðrið hafi verið mjög leiðinlegt. Á Gamlársdag var síðan síðasti viðburður Sindra á þessu ár þegar hið árlega víðavangshlaup Sindra og KHB fór fram. Mjög góð þátttaka var í hlaupinu og keppendur á öllum aldri létu veðrið ekkert á sig fá. Þrjár vegalengdir voru í boði 2,5 km., 5 km. og 10 km. og voru veitt verðlaun fyrir fyrsta sætið í öllum greinum karla og kvenna og þá fengu allir sem þátt tóku verðlaunapening.

Iðunn Tara Ásgrímsdóttir og Fannar Blær Austar Egilsson urðu fyrst í 10 km. hlaupi, Júlían Bent Austar Egilsson og María Birkisdóttir voru svo fljótust í 5 km. hlaupinu og Eiríkur Snær Jóhannesson og Inga Kristín Aðalsteinsdóttir voru fyrst í 2.5 km. hlaupi.
Þá fóru meistaraflokkar Sindra á Reyðarfjörð og kepptu við Leikni Fárskrúðsfirði og unnu stelpurnar okkar 3-2 og Sindrastrákarnir unnu 4-0.

UMF. Sindri vill þakka öllum sem þeim sem tóku þátt í atburðum liðinnar viku sem og öllum fyrirtækjum sem styrktu þessi verkefni. Einnig vill UMF. Sindri koma á framfæri þakklæti til Hornfirðinga fyrir samstarfið á árinu með von um samstarfið verði jafn árangursríkt á nýju ári og það hefur verið undanfarin ár. Aðalstjórn Sindra óskar öllum Hornfirðingum farsældar á nýju ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica