Sindra fréttir
Lokahóf 2007
Lokahóf 2007
Lokahóf 2007
Mynd 1 af 2
1 2

26.10.2007 Sindra fréttir

Fjölmargar viðurkenningar voru veittar á lokahófinu

Lokahóf meistaraflokka Sindra var haldið laugardaginn 13. október í Pakkhúsinu. Þar voru leikmenn meistaraflokka karla og kvenna samankomnir til þess að gera sér glaðan dag ásamt stjórnarmönnum. Sú hefð hefur skapast á undanförnum árum að bjóða heiðursgestum á þessa samkomu. Að þessu sinni voru heiðursgestir lokahófs knattspyrnudeildar Sindra hjónin Arna Harðardóttir og Þórhallur Einarsson. Þau hafa verið viðloðandi knattspyrnudeildina með einum eða öðrum hætti um árabil og ávallt verið tilbúin til þess að veita henni liðsinni sitt þegar þurft hefur á að halda. Það er ómetanlegt í félagsstarfi eins og þessu að geta leitað til fólks sem alltaf er tilbúið að leggja starfinu lið.

Fjölmargar viðurkenningar voru veittar á lokahófinu. Margir ungir leikmenn bæði í meistaraflokki karla og kvenna fengur viðurkenningar fyrir að hafa spilað sinn fyrsta leik í sumar. Efnilegustu leikmenn sumarsins voru Atli Haraldsson í meistaraflokki karla og Heba Björg Þórhallsdóttir í meistaraflokki kvenna. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir leikmenn ársins 2007 sem leikmenn flokkanna völdu sjálfir. Í meistaraflokki karla var Björn Pálsson var leikmaður ársins en í meistaraflokki kvenna var markvörðurinn Hulda Björg Sigurðardóttir valin leikmaður ársins. Þau stóðu sig bæði mjög vel í sumar og eru því vel að þessari viðurkenningu komin.

Stjórn knattspyrnudeildar Sindra og leikmenn meistaraflokkanna vilja að lokum koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn í starfi deildarinnar í sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica