Uppskeruhátíð yngri flokka knd. Sindra
Þriðjudaginn síðastliðinn var haldin á vegum knattspyrnudeildar Sindra uppskeruhátíð yngri flokka. Var farið í ýmsa skemmtilega leiki og boltaþrautir, síðan var miklu magni af skúffuköku og kakói gerð góð skil ásamt vænum skammti af rjóma. Allir þeir sem mættu fengu síðan gullmedalíu að launum fyrir góðan áhuga og árangur í sumar. Gríðarlega gaman var að sjá mætinguna á hátíðna bæði hjá þátttakendum og foreldrum. Í sumar var spiluð mikil knattspyrna á vegum yngri flokkanna en Sindri heldur úti 10 flokkum af báðum kynjum. Keppnisálag var mismikið eftir aldri þáttakanda en allir flokkar tóku þátt í einhverjum mótum, bæði Íslandsmóti og sérmótum svo sem Sparisjóðsmótinu í Borgarnesi, N1 mótinu á Akureyri og Reycup í Reykjavík. Mikið var ferðast með þessa flokka og til gamans má geta að þeir sem lengst fóru í Íslandsmóti í sumar spiluðu leik á Grundarfirði.
Frábær árangur náðist á mótum sumarsins. 4 og 3 flokkar kvenna náðu frábærum árangri í úrslitakeppnum Íslandsmótsins, 3. flokkur karla varð Íslandsmeistari í 7 manna bolta og 4. flokkur karla varð í 3 sæti í sínum riðli. Einnig má geta þess að bæði strákar og stelpur hjá knd. Sindra tóku þátt í knattspyrnu á Unglingalandsmótinu sem haldið var hér um verslunarmannahelgina og stóðu sig með mikilli prýði og unnu meðal annars til gullverðlauna.
Einnig er gaman að geta þess að yngri flokkar Sindra unnu tvenn háttvísisverðlaun í sumar en það var annars vegar á Sparsjóðsmótinu í Borgarnesi, en þangað fóru á milli 80 og 90 þátttakendur á vegum Sindra, og hins vegar á Reycup en þangað fór 4. flokkur karla og spilaði þar meðal A-liða og stóðu strákarnir sig með mikilli prýði.
Öllum þessum krökkum fylgja foreldrar sem eru ákafir stuðningsmenn Sindra og hafa sýnt af sér mikinn sóma hvert sem farið er og ætti ekki síður að verðlauna þá þegar háttvísi er verðlaunuð
Nú er vetrarstarfið að fara á fullt, krakkarnir skipta um flokka og hefja nýtt tímabil. Æft verður á fullum krafti í vetur, bæði úti og inni, þó verða yngstu flokkarnir eingöngu inni. Stundarskráin verðu kynnt núna um helgina og hefst allt á fullu strax á mánudag.
Með fótboltakveðju
Yngriflokkaráð knattspyrnudeildar Sindra




Skrifa athugasemd