Mikið um að vera í fótboltanum um helgina
Óhætt er að segja að mikið sé um að vera hjá knattspyrnudeild Sindra um helgina. Tveir leikir fara fram á Mánavelli um helgina auk þess sem 3. og 4. flokkur kvenna taka þátt í úrslitamótum sinna flokka í sínum Íslandsmótum. Úrslitakeppnin í 4. flokki kvenna fer fram á Sindravelli og er keppt bæði á laugardag og sunnudag. Fyrsti leikur hefst kl. 13:00 á laugardaginn. Auk Sindra taka þátt í úrslitunum; Leiknir Rvík., Fram, Magni og Tindastóll. 3. flokkur kvenna ferðast til Vestmannaeyja til þess að taka þátt í sinni úrslitakeppni. Þar etja stelpurnar kappi við lið sem einnig hafa unnið sér rétt til þess að keppa um Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki kvenna. Auk Sindra taka þátt í úrslitunum; ÍBV, KA, KS/Leiftur og Stjarnan. Vonandi gengur báðum flokkum vel um helgina og hvetjum við sem flesta til að mæta á Sindravöll um helgina og hvetja stelpurnar í 4. flokki til dáða á heimavelli.
4. flokkur karla sinn síðasta leik á Íslandsmótinu á sunnudaginn kl. 16:00 á Mánavelli á móti Selfossi. Strákarnir hafa náð mjög góðum árangri í sumar og eru sem stendur í 3. sæti síns riðils og geta með sigri náð 2. sæti. Það er mjög góður árangur hjá strákunum enda um mjög öflugan og erfiðan riðil að ræða.
Einnig keppir meistaraflokkur karla hjá Sindra sinn næstsíðasta heimaleik á laugardaginn kl. 16:00 á Mánavelli. Hver leikur er nú upp á líf og dauða hjá meistaraflokki þar sem einungis eru fjórir leikir eftir af mótinu og baráttan á botninum er hörð. Miklar sviptingar hafa verið hjá meistaraflokki í sumar. Skemmst er að minnast þess að Árni Rúnar Þorvaldsson sagði starfi sínu lausu um mitt sumar. Til bráðabirgða tók Gunnar Ingi Valgeirsson við starfinu. Stjórn meistaraflokksráðs knd. Sindra ákvað að leita til Hajrdudins Cardaklija til þess að stýra liðinu út þetta tímabil. Cardaklija tók áskoruninni og stýrði hann liðinu í sínum fyrsta leik um síðustu helgi á Ólafsfirði.



Skrifa athugasemd