Sindra fréttir
3. flokkur karla Íslandsmeistarar
3. flokkur karla Íslandsmeistarar
3. flokkur karla Íslandsmeistarar (úr myndasafni)
Mynd 2 af 2
1 2

23.08.2007 Sindra fréttir

3. flokkur karla Íslandsmeistarar

Sunnudaginn 19. ágúst náði 3. flokkur karla hjá Sindra þeim frábæra árangri að verða Íslandsmeistari í keppni 7 manna liða í fótbolta. Strákarnir hafa spilað mjög vel í allt sumar og varla stigið feilspor. Þeir hafa spilað 10 leiki í sumar og unnið 9 leiki. Eitt jafntefli hafa þeir gert og enduðu mótið með 28 stig og markatöluna 36 ? 15. Næsta lið á eftir þeim lauk keppni með 19 stig. Þannig að sigur strákanna í mótinu var sannarlega sannfærandi og öruggur. Í flestum tilvikum voru sigrarnir hjá strákunum mjög öruggir og sannfærandi þannig að sigur þeirra í mótinu var í raun aldrei í hættu. Eina jafnteflið sem þeir gerðu var á útivelli á móti Skallagrími frá Borgarnesi.

Það er vonandi að strákarnir fylgi eftir þessum góða árangri og haldi áfram að stunda fótboltann af krafti. Enginn vafi leikur á því að innanborðs í þessu liði 3. flokks eru framtíðarleikmenn meistaraflokks karla hjá Sindra í fótbolta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica