4. flokkur karla fékk afhent háttvísiverðlaun á Rey-cup
4. flokkur karla í knattspyrnu hjá Sindra hélt síðast liðin miðvikudag á mót í Laugardalnum sem nefnist Rey cup. Þetta er alþjóðlegt mót sem Þróttur Reykjavík heldur ár hvert. Þarna koma saman krakkar á aldrinum 13 - 16 ára bæði strákar og stelpur . Í ár voru þátttakendur um 1000 talsins, við hjá Sindra sendum eitt lið til keppni og voru það strákar í 4. flokki 15 strákar allir á eldra ári þ.e.a.s. 14 ára .Við skráðum okkur í keppni A- liða og var árangurinn góður 2 sigrar 3 töp og 1 jafntefli sem skilaði okkur í 8 sæti af 12 A-liðum . Það voru alls 30 lið sem skráðu sig í 4. flokk karla í A, B og C liðum. Strákarnir stóðu sig vel jafnt innan vallar sem utan og fékk liðið afhent háttvísi verðlaun í 4. flokki karla á mótsslitunum og var það forseti Knattspyrnusambands Evrópu, Michel Platini sem veitti verðlaunin. Háttvísiverðlaunin eru veitt eftir fyrirfram ákveðnum reglum þar sem bæði er tekið tillit til framkomu utan og innan vallar.
Að lokum að koma þakklæti til þeirra foreldra sem komu og hjálpuðu okkur þessa daga og studdu strákana í leikjunum .
Kv. Sævar þjálfari




Skrifa athugasemd