Sindra fréttir
Meistaraflokkur_Sindri_IMG_5065
Meistaraflokkur_Sindri_IMG_5065
Tekist á um boltann (úr myndasafni)

25.07.2007 Sindra fréttir

Þjálfaraskipti hjá meistaraflokki karla

Mánudaginn 23. júli síðastliðinn urðu þjálfaraskipti hjá meistaraflokki karla í Sindra. Árni Rúnar Þorvaldsson sem hefur verið þjálfari liðsins í ár sagði starfi sínu lausu og við tekur Gunnar Ingi Valgeirsson tímabundið þar til fundin hefur verið framtíðarlausn í þjálfaramálum liðsins. Gunnar Ingi er margreyndur leikmaður og hefur spilað yfir 300 leiki í Íslandsmótinu fyrir Sindramenn. Sindri Ragnarsson, leikmaður Sindra, mun halda áfram starfi sínu sem aðstoðarþjálfari liðsins og saman munu þeir félagar stýra liðinu gegn ÍR-ingum næstkomandi föstudag á heimavelli.
Aðstpurður sagðist Árni hafa tekið þessa ákvörðun að vel athuguðu máli og taldi þessa lausn vera skynsamlegasta fyrir liðið. Árni sagði að árangurinn undir hans stjórn hefði ekki verið ásættanlegur en steininn hefði tekið úr í síðasta leik á móti Selfossi þar sem liðið var algjörlega andlaust.

?Nú er ég búinn að reyna að þjálfa liðið, það hefur ekki gefið nógu góða raun og nú er rétti tíminn til þess að hleypa öðrum að og sjá hvort þeir nái betri árangri?, sagði Árni. Aðspurður sagðist Árni ætla að halda áfram stjórnarstörfum sínum innan deildarinnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica