Sindra fréttir
Frjálsar á nýjum velli
Frjálsar á nýjum velli
Grindahlaup á nýjum velli
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

17.07.2007 Sindra fréttir

Fyrstu æfingar hófust í dag í frjálsum á nýja tartanvellinum

Í dag hófust æfingar í frjálsum íþróttum á nýja tartanvellinum hér á Höfn. Það var að vonum ánægður hópur sem spreytti sig á hlaupabrautunum sem eru að þeirra sögn alveg frábærar. Það sem af er sumri hafa æfingar í frjálsum að mestu farið fram inn við Mánagarð en nú hafa þær verið færðar út á Höfn enda eðlilegt að nýta þessa frábæru aðstöðu. Verið er að ljúka við frágang í kringum völlinn og einnig er unnið að kringlu- og kúluhringjunum en að öðru leyti er völlurinn tilbúinn fyrir frjálsar. Nú styttist óðum í unglingalandsmótið og um að gera fyrir þá sem enn hafa ekki hrist rykið af íþróttaskónum að gera það og drífa sig á æfingar.

Æfingatími hefur aðeins breytst og er nú sem hér segir;
10 ára og yngri er í hádeginu, frá 12:00-13:00 mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
11 og 12 ára eru kl. 17:00 mánudaga til fimmtudaga og
13 ára og eldri eru kl. 19:00 mánudaga til fimmtudaga.



Sjáumst á Sindravöllum

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica