Sindra fréttir
UMFÍ
UMFÍ
Í eldlínunni
Mynd 1 af 2
1 2

11.07.2007 Sindra fréttir

Stóðu í eldlínunni á Landsmótinu í Kópavogi um síðustu helgi

Þau, Sveinbjörg Zophoníasdóttir, Fannar Blær Egilsson, Haukur Margeir og Guðrún Ingólfsdóttir stóðu í eldlínunni á risa Landsmótinu í Kópavogi um helgina. Sveinbjörg stóð sig mjög vel hún setti 2 Úlfljótsmet, í spjótkasti þar sem hún bætti 25 ára gamalt met sem var 34.24 í 36.54 og í langstökki meyja þar sem gamla metið var 5.18 í 5.25 síðan hlaut hún silfur í þrístökki með stökk upp á 10.85 sem er næslengsta stökk á Íslandi í sumar hjá konunum. Fannar tók þátt í 5000 m hlaupi á tímanum 16.57.11 sem er Úlfljótsmet í hans flokki hann var lang yngstur keppandinn og gaf þessi tími honum þátttöku í úrvalshóp unglinga á Íslandi eins og Sveinbjörg gerði í þeim greinum sem hún tók þátt í. Íslandsmethafin Guðrún Ingólfsdóttir tók einnig þátt í kringlukast hún varð í öðru sæti, verður það að kallast gott af 50 ára keppanda að komast svo hátt á verðlaunapall á aðal Landsmóti.

Haukur Margeir kastaði kringlu og varð í 9 sæti af 18 keppendum og tók 2 stig inn fyrir Úlfljót. Úlfljótur hlaut 34 stig í keppninni og varð í 8. sæti af 14 sætum sem kallast gott þar sem Úlfljótur sendi aðeins 4 keppendur til leiks, en allir fjórir keppendurnir gáfu stig skutu þeir mörgum af stærri félögum ref fyrir rass Þess má geta að Hornfirðingurinn Bjarni Malmquist sópaði að sér verðlaunum og setti íslandsmet með boðhlaupssveit Fjölnis í 4x100 m hlaupi. Hann bætti sig í langstökki stökk 6.99 m og varð í 2 sæti. Hann varð líka í 2 sæti í 110 m grind og 3 sæti í 400 m grind. Það er auðséð að Bjarni er í hörku formi og verður gaman að fylgjast með honum í sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica