Sindra fréttir
Heimsókn til Sindra
Heimsókn til Sindra
Margrét Lára og Guðný Björk á vellinum með Sindrastúlkunum
Mynd 2 af 3
1 2 3

11.07.2007 Sindra fréttir

Landsliðskonur í heimsókn til Sindra

Mánudaginn 9. júlí fengu stelpurnar í 2. 3. og 4. flokki Sindra landsliðskonuna Margréti Láru Viðarsdóttir í heimsókn ásamt aðstaðarmanni hennar Guðnýju Björk Óðinsdóttur. Margrét Lára er eins og flestir vita ein fremsta fótboltakona sem Ísland hefur alið og Guðný ein af þessum nýju stelpum sem klæðist landsliðspeysunni góðu. Heimsóknin hófst með fyrirlestri í Nýheimum þar sem Margrét talaði til stelpnanna um eigin reynslu og hvernig mætti endalaust bæta sig og hvað þyrfti til að verða afreksmaður í íþróttum og ekki síður hvaða möguleikar liggja í kvennaknattspyrnunni bæði heima og erlendis. Fyrirlesturinn stóð í 80 mínútur og náði Margrét vel að fanga athygli stúlknanna sem voru afar ánægðar með þetta. Eftir þetta var haldið út á æfingarsvæði þar sem þær stöllur Margrét og Guðný stjórnuðu æfingu með hópnum og farið var í keppni þar sem flott verðlaun voru í boði.

Að lokum voru allar stelpurnar leystar út með gjöfum. Þetta er allveg frábært verkefni sem Margrét Lára stjórnar og er í samvinnu við fótbolti.net, TM, Egils Kristal og Húsasmiðjuna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica