Sumarstarf Sindra komið í fullan gang
Nú þegar skólarnir eru komnir í sumarfrí eykst starfið hjá Ungmennafélaginu Sindra til muna.
Í byrjun vikunnar hófust m.a. sundnámskeið hjá sunddeildinni þar sem Hulda Laxdal Hauksdóttir stjórnar og Ævintýra og leikjanámskeið hjá knattspyrnudeildinni þar sem Sindri Ragnarsson ræður ríkjum. Örfá pláss eru enn laus á þessi námskeið. Þá verða fótboltaæfingar verða 4 sinnum í viku hjá öllum flokkum. Frjálsar íþróttir verða með æfingar fyrir yngstu krakkana á Sindravöllum, en þau eldri verða á Mánavelli a.m.k. til að byrja með. Þá ótaldar æfingar hjá sunddeildinni.
Allar nánari upplýsingar eru í fréttablaði ÆTH ?Hornfirst sumar 2007? sem dreift hefur verið í öll hús.



Skrifa athugasemd