Sveinbjörg sigraði með nýju USÚ meti á Íslandsmeistaramóti
Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppti um helgina á Íslandsmeistaramóti í fjölþrautum sem fram fór á Laugardalsvelli. Hún keppti í sjöþraut meyja og sigraði hana með nýju USÚ meti hlaut 3785 stig. Jafnframt setti hún USÚ met í kúluvarpi í sínum flokki varpaði kúlunni 11.61 m og jafnaði USÚ metið í hástökki stökk 1,58 m. Sveinbjörg var í hörku stuði bætti persónulegan árangur sinn í 6 greinum af 7. Nú eru að hefjast úti æfinga hjá frjálsíþróttafólkinu og verða þær á Mánavelli þar til Sindravöllurinn verður tilbúinn. Og verða þeir sem æfa að koma sjálfir á völlinn og biðjum við foreldra að taka tillit til þess að koma krökkunum á völlinn. Þess má geta að Hornfirðingurinn Bjarni Malmquist Jónsson sem nú keppir fyrir Fjölni, hafnaði í 3ja sæti í tugþraut karla á sama móti.
Æfingar í frjálsmum hjá Sindra og Mána fyrir 11 og 12 ára byrja kl. 18:30 mánud, þriðjud, miðvikud. og fimmtud. Æfingar fyrir 13 ára og eldri byrja sömu daga kl. 19:30 Yfirþjálfari er Guðrún Ingólfsdóttir.



Skrifa athugasemd