Dómaranámskeið í frjálsum íþróttum
Eins og bæjarbúar hafa orðið varir við standa yfir miklar framkvæmdir á íþróttavellinum. Nú er verið að þökuleggja hann og óðum styttist í að gerviefni verði lagt á hlaupabrautir og stökksvæði. Íþróttavöllurinn á að vera fullbúinn fyrir unglingalandsmótið en það þarf fólkið líka að vera bæði keppendur og starfsmenn. Því voru í dag fjórán áhugasamir einstaklingar um frjálar íþróttir á dómaranámskeiði og munu þeir leggja sitt af mörkum á landsmótinu sem og öðrum mótum.
Leiðbeinandi var Birgir Guðjónsson en hann er einn fremsti dómari landsins og þó víðar væri leitað.




Skrifa athugasemd