Sindra fréttir
5_flokkur 2005
5_flokkur 2005
5_flokkur 2005 (úr myndasafni)

05.05.2007 Sindra fréttir

Foreldrafundir knattspyrnudeildar Sindra

Á aðalfundi knattspyrnudeildar Sindra sem haldinn var i Nýheimum 29. mars síðastliðinn kynnti fráfarandi stjórn knattspyrnudeildarinnar hugmyndir sínar um stjórnarfyrirkomulag knattspyrnudeildarinnar. Hugmyndirnar snúast um það að stjórn knattspyrnudeildarinnar samanstandi af yngri flokka ráði og meistaraflokkaráði. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin þannig með sér verkum að í yngri flokka ráði sitja Gauti Árnason, Nökkvi Jóhannesson og Halldóra Guðmundsdóttir. Í meistaraflokkaráði sitja Gunnar Ingi Valgeirsson, Gunnar Þorláksson og Miralem Haseta. Vonandi verða þessar ráðstafanir til þess að efla enn það góða starf sem fram fer hjá knattspyrnudeildinni.

Nú hefur yngri flokka ráð hafið störf og boðar foreldra iðkenda í 7. og 6. flokki karla og kvenna og 5. flokki kvenna á fund í Nýheimum mánudaginn 7. maí kl. 20:00. Á fundinum verður farið yfir mótamál sumarsins, foreldraráð flokkanna stofnuð og farið verður yfir þjálfaramál sumarsins. Mikilvægt er að sem flestir mæti vegna þess að það liðkar fyrir öllu starfinu í sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica