Fínt gengi hjá ungum (fyrrverandi) Sindramönnum í knattspyrnu
Frans Elvarsson leikur nú með Íslenska landsliðinu skipuðum leikmönnum 17 ára og yngri á Portúgal. Hefur hann verið í byrjunarliðinnu fyrstu 2 leikina. Frans hefur stundað knattspyrnu með Sindra frá unga aldri og er gríðarlegt efni þar á ferðinni. Frans gekk til liðs við lið Njarðvíkur nú í haust og stundar jafnframt nám í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Njarðvíkingar leika í 1. deild í sumar. Spennandi verður að fylgjast með frammistöðu Frans í sumar. Gísli Freyr Brynjarsson hefur verið að taka sín fyrstu spor fyrir meistaraflokk ÍA í vor og gengið þokkalega. Gísli flutti á Akranes ásamt foreldrum sínum fyrir tæpum 2 árum. Hann hefur æft með Skagamönnum síðan þá og líkar vel við sig á Skaganum. Þar er ekki ónýtt fyrir fótboltaáhugamann að flytja upp á Skipaskaga þar sem lífið gengur út á fótbolta.
Þá er það að frétta að Ármanni Smára er búinn að vera á ferð og flugi frá áramótum með nýja liðinu sínu Brann frá Noregi og er að standa sig mjög vel. Það er sannarlega gott fyrir knattspyrnudeild Sindra að eiga jafna marga frambærilega leikmenn sem aðrir ungir leikmenn Sindra geta litið upp til.
Knattspyrnudeild Sindra óskar að sjálfsögðu þessum ungu mönnum alls hins besta og með von um að þeir nái ennþá lengra.




Skrifa athugasemd