74. þing USÚ haldið í Mánagarði
Þing USÚ var haldið í Mánagarði laugardaginn 10. mars. Þingfulltrúar voru rúmlega 30 og fjöldi gesta var mættur enda viðburðarríkt ár í héraðinu. Meðal gesta voru Björn B. Jónsson formaður UMFÍ, Helga Guðjónsdóttir varaformaður UMFÍ, Sigríður Jónsdóttir úr stjórn ÍSÍ og Erlendur Kristjánsson frá menntamálaráðuneytinu. Það voru ekki mörg mál sem lágur fyrir þinginu en Akstursíþróttaklúbbur Austur- Skaftafellssýslu fékk aðild að USÚ. Enda ætla meðlimir klúbbsins að sjá um mótorcrosskeppni á unglingalandsmótinu í sumar.
Ýmsar kynningar voru, Ragnhildur Einarsdóttir var með skýrslu um stöðu mála í undirbúningi unglingalandsmótsins, Friðrik Ingvaldsson var með erindi um stöðu mála í uppbyggingu á íþróttamannvirkjum, Björn Jónsson kynnti Risalandsmótið sem verður í Kópavogi helgina 6.-8. júlí og svo var Guðrún Snorradóttir með kynningu á verkefninu Flott án fíknar sem er á vegum UMFÍ.
Á eftir þinginu fóru svo allir í afmæli hjá Umf. Mána og drukku kaffi og nutu skemmtidagskrárinnar.



Skrifa athugasemd