Sindra fréttir
Mars_2007_035
Mars_2007_035

08.03.2007 Sindra fréttir

Fleiri USÚ met falla

Um helgina fóru 9 ungir keppendur frá USÚ á Meistaramót Íslands 12-14 ára í Reykjavík. Þau stóðu sig alveg með sóma eins og ávallt. 6 USÚ met voru sett og tvenn bronsverðlaun unnust og margir komust á meðal átta efstu þar sem voru um og yfir 50 keppendur. Þessi árangur segir okkur að mikil gróska er í frjálsum íþróttum á Hornafirði núna og er greinilegt að unga fólkið ætlar að koma vel undirbúið á Unglingalandsmótið í sumar sem haldið verður á Sindravöllum.
Atli Dagur Eyjólfsson var í miklu stuði og setti USÚ met í 11-12 ára flokki í 800 m hlaupi á 2,41,03 sek. og hlaut brons. Hann setti líka USÚ met í 60 m hlaupi á 9,13 sek. og var í 8. sæti af 55 keppendum og síðan setti hann USÚ met í langstökki og stökk 4.11 m og var í 6. sæti af 50 keppendum.

Júlían Bent Austar Egilsson var líka í hörku stuði og setti USÚ met í 60 m grindahlaupi í 13-14 ára flokki á tímanum 11.62 sek. og lenti í 7. sæti af 20 keppendum. Hann hlaut líka brons fyrir 800 m hlaup á 2.38.33 mín. þar sem voru 20 keppendur. Svo lenti hann í 4. sæti í hástökki með því að fara yfir 1.40 m þar sem voru 27 þátttakendur.

Siggerður Aðalsteinsdóttir var líka létt á sér um helgina, hún sett USÚ met í 800 m hlaupi í 11-12 ára flokki og hljóp á 2.56.21 mín. og lenti í 5. sæti með þennan árangur.

Svo setti boðhlaupssveit USÚ í 11-12 ára flokki stráka met í 4x200 m hlaupi á tímanum 2.11.87 sek. og lentu þeir í 4. sæti en unnu samt sinn riðil. Sveitina skipuðu Alexander Alvin Einarsson, Ingvi Þór Sigurðsson, Atli Dagur Eyjólfsson og Eiríkur Snær Jóhannsson.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica