Frábær árangur hjá 2. flokki kvenna
2. flokkur kvenna í knattspyrnu keppti í úrslitum í Íslandsmótsins innanhúss á dögunum. Skemmst er frá því að segja að stelpurnar náðu frábærum árangri á mótinu og lentu í 5. sæti. Þær börðust af krafti og sýndu oft á tíðum skemmtilega takta sem gefur góð fyrirheit fyrir mót sumarsins í meistaraflokki kvenna. Fyrsti leikurinn hjá stelpunum var gegn KR og voru okkar stelpur heldur feimnar við þær og töpuðu leiknum 0- 4. Næst spiluðu þær við Þrótt Reykjavík og vannst sá leikur 4 ? 0. Síðasti leikurinn í riðlinum var við stórveldið úr kvennaboltanum, Breiðablik og tapaðist sá leikur 5- 2. Næst var spilað um sæti og spiluðum við um 5. sætið. Í leiknum um 5. sætið mættu stelpurnar Tindastól frá Sauðárkróki og unnu okkar stelpur leikinn 4 ? 1 og 5. sætið var okkar.
Sannarlega frábær árangur hjá stelpunum í ljósi þess að þarna tóku þátt mörg af bestu liðum íslenskrar kvennaknattspyrnu.




Skrifa athugasemd