Sindra fréttir
Frjálsar_022007
Frjálsar_022007
Frjálsar_022007

21.02.2007 Sindra fréttir

Sveinbjörg og Bjarni á Meistaramót Íslands í fjölþraut

Sveinbjörg Zophoníasdóttir stóð sig mjög vel á meistaramóti Íslands í fjölþraut, þar setti hún USÚ met í 60 metra grind með tímann 10.15 sek. Gamla metið var 11.22 sek. Þá bætti Sveinbjörg metið í langstökki úr 4,70 m í 4,89 m. USÚ metið í 800 m hlaupi lá líka þegar hún hljóp á 2.48.37 sek. Að lokum setti Sveinbjörg USÚ met í 5. þraut með 2920 stig og varð í 2. sæti í flokki meyja. Bjarni Malmquist varð í 3 sæti í 7 þrautinni hjá köllunum, en hann keppir nú fyrir Fjölni. Þau stóðu sig mjög vel bæði og það var gaman að vera Hornfirðingur í Höllinni um helgina þar sem þau frændsystkinin öttu kappi við allt besta frjálsíþrótta fólk landsins.

Helgina 3 og 4 mars er svo stefnt á að fara með 10 -12 manna hóp Meistaramót Íslands fyrir 12 ? 14 ára ungmenni

- Frjálsíþróttadeild

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica