Landsbankinn verður einn aðalstyrktaraðili Umf. Sindra
Landsbanki Íslands og Ungmennafélagið Sindri hafa gert með sér samning sem gildir til þriggja ára og voru það Jóna Ingólfsdóttir f.h. Landsbankans, Valdimar Einarsson og Magnús Jónasson f.h. Sindra sem undirrituðu samninginn í Landsbankanum á Höfn í dag. Með samningnum verður Landsbankinn einn aðalstyrktaraðili félagsins. Markmið Landsbankans, er að styðja Sindra í íþróttalegu og uppeldislegu hlutverki sínu á Hornafirði. Fyrirtækjabanki Landsbankans lætur Sindra í té fyrirtækjabanka Landsbankans, endurgjaldslaust á samningstímanum ásamt 50% afslætti af innheimtuþjónustu. Landsbankinn ætlar að greiða eina milljón ár hvert til Sindra Umf. Sindri lætur Landsbankann í té fjögur auglýsingaskilti á Sindravöllum, innaná útveggi sundlaugar Hafnar og stórt skilti á Vatnstanki sem nú þegar er til staðar.
Sindri verður með merki Landsbankans, framan á búningum meistaraflokks karla og kvenna í knattspyrnu og körfubolta. Landsbankinn, greiðir merkingar. Sindri lætur Landsbankanum í té heilsíðu auglýsingu í lit í Sindrasímaskránni og á leikskrám, heimasíðu félagsins og bréfsefni. Sindri kemur fyrir auglýsingu frá Landsbankanum innaní miðjuhring á gólfi í íþróttahúsi sem Landsbankinn útvegar í réttu útliti og stærð. Sindri tekur að sér dreifingu á kynningarefni Landsbankans á Hornafirði að hámarki tvisvar á ári, óski bankinn þess.



Skrifa athugasemd