Sindra fréttir
Æfingarhelgi með þjálfara úr Gerplu
Æfingarhelgi með þjálfara úr Gerplu
Æfingarhelgi með þjálfara úr Gerplu (@Katitas Björt)
Mynd 1 af 3
1 2 3

02.02.2007 Sindra fréttir

Yfirþjálfari í Gerplu með æfingarhelgi hjá fimleikadeild

Fimleikadeild Sindra fékk góða heimsókn helgina 26.-28. janúar þá kom kona að nafni Auður Inga Þorsteinsdóttir, hún er yfirþjálfari í Gerplu. Hún kom og kenndi okkur trompfimleika, sem er liðaíþrótt. Yfirleitt hefur fimleikadeild Sindra keppt sem einstaklingar en nú er ætlunin að prófa eitthvað nýtt og hafa lið, þ.e.a.s fyrir áramót er keppt í einstaklingskeppni og eftir áramót í liðakeppni. Auður kom hingað til þess að koma okkur á stað í þessari nýjung og kenna okkur helstu atriðin. Hóparnir sem tóku þátt í æfingunum voru 4 bekkur ? 6 bekkur og 7 bekkur og upp úr. Æfingarnar byrjuðu á föstudeginum, en mest var æft á laugardeginum og svo á sunnudeginum var létt æfing og pizzuveisla á hótelinu. Krakkarnir og þjálfararnir lærðu mikið á þessum tíma, þó stuttur hefði verið, en þetta voru mjög góðar æfingar og það verður mun léttara að fyrir þjálfara vinna núna eftir þessar æfingar.

Þess má að lokum geta að mikil hamingja er bæði hjá iðkendum og ekki síður þjálfurum með nýju græjurnar sem fimleikadeildin keypti fyrir áramót.

-Þjálfarar fimleikadeildar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica