Sindra fréttir
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum
Start
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

02.02.2007 Sindra fréttir

Úlfljótsmetaregn á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum

Frjálsíþróttadeildir Sindra og Mána mættu með fríðan hóp á meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15- 22 ára um síðustu helgi. Þau stóðu sig mjög vel. Það var sannkallað Úlfljótsmetaregn hjá þeim enda aðstaðan í nýju frjálsíþróttahöllinni alveg hreint frábær. Sveinbjörg Zophoníasdóttir var alveg í bananastuði hún setti Úlfljótsmet met í 6 greinum í 60 grind á 11.22 eldra metið var 11.41, í 60 m hlaupi á 8.53 eldra met var 8.72, í Kúluvarpi 11.34 eldra met 11.15, í þrístökki 10,52 það er 45 cm betra en gildandi úti met. Sveinbjörg lenti í 3. sæti með þennan árangur á mótinu. Í hástökki 1.56 eldra metið var 1.53. Sveit USÚ setti Úlfljótsmet í 4x200 metra hlaupi á tímanum 1.06.19 sek en sveitina skipuðu þær Iðunn Tara Ásgrímsdóttir, Guðlaug Margrét Björnsdóttir, Þórunn Jakobína Sigurðardóttir og Sveinbjörg Zophoníasdóttir.

Jón Snorri Þorsteinsson setti Úlfljótsmet í kúluvarpi 15-16 ára með 4 kg. kúlu hann varpaði kúlunni 13,65 og er það aðeins 10 cm frá því að ná lágmarki inn í úrvalshóp FRÍ. Það verður létt verk fyrir hann að bæta sig og stefna að því að komast í hóp hinna bestu.
Hann varð í 3.sæti með þennan árangur í kúluvarpi 15-16 ára

Fannar Blær Austar Egilsson setti Usú met í 3000 m hlaupi á tímanum 9,45,55 sek sem er mjög góður árangur hjá aðeins 15 ára dreng.
Fannar keppti í flokki 19-22 ára og varð 4. sem kallast mjög góður árangur. Hann setti líka met í 200 m í flokki 15-16 ára sem er 27.62 sek.

Bjarni Malmquist Jónsson er nú farinn úr okkar röðum og gekk í Fjölni við óskum honum góðs gengis hjá nýja félaginu sínu. Hann stóð líka í ströngu um helgina og tók þátt í 6 greinum
Hann var 2. í langstökki með 6,70 m, 4. í 60 m hlaupi 7,21 sek., 2. í 200 m hlaupi 22,67 sek., 1. í stangarstökki 3,90 m. 3. í grind hlaupi 9,09 sek., Hann var líka í boðhlaupssveit Fjölnis sem sett íslandsmet í 4x200 m undir 22 ára

Flestir keppendurnir frá USÚ eru á yngra ári í þeim flokki sem þeir kepptu í og hafa því þeir minni möguleika á því að hljóta sæti á palli. Það er í reglum FRÍ að um leið og unglingur er orðin 15 ára skulu þá 2 aldurshópar keppa saman í flokki 15-16 ára, 17-18 ára keppa og 19-22 ára keppa saman.
En þessi regla er í endurskoðun hjá FRI vegna mikillar þátttöku í frjálsíþróttum með tilkomu betri aðstöðu í Reykjavík.

Mikil gróska er í Frjálsíþróttum hjá okkur núna allt að 50 manns er á æfingum og er greinilegt að keppendur ætla að standa sig vel á landsmótinu sem fram fer hér á Höfn um verslunarmannahelgina í sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica