Sindra fréttir
Gamlárshlaup Sindra 2006
Gamlárshlaup Sindra 2006
Gamlárshlaup Sindra 2006
Mynd 6 af 7
1 2 3 4 5 6 7

04.01.2007 Sindra fréttir

Góð mæting í Gamlárshlaup Sindra og K.H.B.

Gamlárshlaup Sindra var haldið eins og nafnið gefur til kynna á Gamlársdag og í blíðskaparveðri. Hlaupið er á vegum Sindra og K.H.B. Hlaupnir voru 2,5km og 10km og voru hlaupara á öllum aldri en alls mættu 43 til keppni.og dæmi var um að heil fjölskylda mætti og tók þátt. Lagt var af stað frá sundlauginni og þau sem hlupu 2 km sneru við tjaldstæði og voru 26 sem fóru þessa vegalend og var Hrafn Logi Hermannsson fyrstur drengja á tímanum 9.00 mín. sléttum, fyrst stúlkna var Siggerður Aðalsteinsdóttir með tímann 9.47 mín. 10 hlauparar fóru 5 km og kom Júlían Austar Egilsson fyrstur í mark á tímanum 24.04 mín. og Sveinbjörg Zophoníasdóttir fyrst kvenna á tímanum 27.06 mín.

7 hlauparar sem fóru í 10 km hlaupið og var mikil spenna hvort Miza húsvörður og hlaupagarpur mundi hafa ungstirnið Fannar Blæ, en svo fór að Fannar Blær Egilsson varð tæpum 2 mín. á undan reynsluboltanum Miralem Haseta, en tími Fannars varð 39.15 mín. og Iðunn Tara Ásgrímsdóttir varð fyrst kvenna með tímann 55.26 mín.
Þetta var flottur endir á árinu hjá Sindra og má segja að umsjónarmenn hlaupsins eru að rifna úr monti með þessa mætingu og eru harðákveðnir í að gera þetta að árlegum viðburði og stefna á enn betri mætingu að ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica