Gamlárshlaup Sindra og K.H.B.
Á Gamlársdag stendur Frjálsíþróttadeild Sindra fyrir Gamlárshlaupi Sindra og K.H.B. Þær vegalengdir sem hægt verður að velja á milli að hlaupa eru 2 km., 5 km., og 10 km. Keppt verður í karla- og kvennahlaupi. Mæting verður við Sundlaugina og fer þar einnig fram skráning. Ekkert skráningargjald er í þetta hlaup og vonast frjálsíþróttadeildin eftir að sjá sem flestra og á öllum aldri. Það er ætlum okkar hjá deildinni að gera þetta að árlegum viðburði. K.H.B. styrkir deildina að þessu sinni með því að gefa verðlaun, en allir sem hlaupa fá pening um hálsinn og þá verður einnig bikarar fyrir fyrstu sætin í hverri vegarlengd fyrir sig fyrir bæði kynin.
Hlaupið hefst kl. 13 og vonumst við til að sjá sem flesta
Frjálsíþróttadeild Sindra




Skrifa athugasemd