Sindra fréttir
Jólakort Fimleikadeidlar Sindra
Jólakort Fimleikadeidlar Sindra
Kort teiknað af Önnu Birnu 9 ára (2006)
Mynd 3 af 6
1 2 3 4 5 6

01.12.2006 Sindra fréttir

Jólakort til styrktar Fimleikadeildar Sindra

Eins og fram hefur komið stendur Fimleikadeild Sindra á tímamótum, en 20 ár eru síðan hún var stofnuð. Í haust var ákveðið að á þessum tímamótum að þau tæki deildarinnar sem eru orðin slitin og úrelt yrðu endurnýjuð og eru nauðsinleg til að hægt sé að stunda fimleika hér í Sveitarfélaginu. Pantað var nýtt fibergólf og stökkhest sem deildin hefur þegar fengið. Til þess að greiða fyrir þessi tæki hefur Fimleikadeildin verið með ýmsar fjáraflanir í gangi, svo sem fernusöfnun og ruslatínslu. Nú fyrir jólin verða seld jólakort þar sem ágóðinn mun renna beint í þetta verkefni. Jólakortin eru heimatilbúin því að þau eru teiknuð af krökkunum sjálfum í fimleikadeildinni og prentuð hjá BBprentun á endurunnin pappír. 10 kort eru í pakka og kosta 1000 krónur en 5 í pakka kosta 600 krónur.


Þeir sem vilja styrkja fimleikana geta verslað kortin í Martölvunni og í Sindrahúsinu. Einnig er hægt að hafa samband símleiðis við Valda í 8686865, Báru í 478 1960 eða Gunnhildi í síma 478 1930.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica