HúllumHæ um Hornafjörð lokið
Opinni íþróttaviku sem nefndist HúllumHæ um Hornafjörð lauk á sunnudaginn. Þetta var samstarfsverkefni Umf.Sindra, USÚ og sveitarfélagsins. Tilgangur vikunnar var að vekja athygli á því sem um er að vera á íþróttasviðinu með ýmsum hætti. Boðið upp á heimsóknir í íþróttatíma, að taka þátt í gönguferðum og kynna sér Robe-Joga og stafagöngu, einnig kynnti Sporthöllin starfsemi sína. Unglingarnir í Þrykkjunni buðu upp á kaffi, kakó og súpu og sýndu myndina um Jón Pál. Nemendur Tónskólans fluttu tónlist í Miðbæ. Bæjarbúar sýndu þessu framtaki fremur lítinn áhuga. Þokkaleg aðsókn var þó í einstaka tíma en það var einungis fimleikasýningin á laugardeginum sem fékk góða aðsókn. Utanhúss var boðið uppá göngutúra með eldri borgurum, göngu á Ægisíðu fyrir hunda og eigendur þeirra, rölt var upp Almanaskarðið, og víðavangshlaup var á vegum USÚ þar sem hlaupnir voru 2, 5 og 10 km.
Hundaeigendur voru ánægðir með göngutúrinn og stefna á að gera þetta að vikulegum viðburði. Þeir ætla að hittast á laugardögum kl. 11.00 og vonast eftir að sjá fleiri hunda og eigendur þeirra. Eins og fyrr er getið var góð mæting á fimleikasýninguna sem var aldurs og getu skipt. Þar byrjuðu yngstu nemendurnir fyrst að sýna og svo koll af kolli. Nú styttist nú í að nýju fimleikatækin komi og verða þau vonandi kominn í notkun fyrir áramót. Þau verða án efa mikil lyftistöng fyrir fimleikana.
Víðavangshlaup USÚ fór svo fram á sunnudaginn og mættu 12 keppendur og hlupu 6 þeirra
2 km. þar átti besta tímann hjá drengum Hrafn Logi 9.43 mín. Ljósbrá varð fyrst stúlkna á tímanum 13,25 mín. 5 km hlupum 5 keppendur og var Júlían með besta tíman á 24.11 mín. Sveinbjörg varð fyrst kvenna og hljóp á 29,2 mín. Einn keppanda hljóp svo 10 km. en það var Brynja kennari sem hljóp á 55,51 mín. Fínir tímar svona á vetrardegi og í snjó. Búið er að ákveða að næsta hlaup verið á Gamlársdag og er stefnan sett á 30 keppendur!
Þessi vika sýndi bæjarbúum að úr mörgu er að velja á íþróttasviðinu hér og gróska í starfi.
Umf. Sindri, USÚ og Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar vilja þakka þeim sem tóku þátt og þeim sem stóðu að uppákomum og veittu stuðning kærlega fyrir.



Skrifa athugasemd